„Þuríður Elíasdóttir yngri (Berjanesi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þuríður Elíasdóttir yngri''' í Berjanesi, (Dúa), síðar húsfreyja á Englandi fæddist 5. mars 1919 á Fossi í Mýrdal og lést 20. nóvember 2002.<br> Foreldrar henn...)
 
m (Verndaði „Þuríður Elíasdóttir yngri (Berjanesi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 19. desember 2021 kl. 14:45

Þuríður Elíasdóttir yngri í Berjanesi, (Dúa), síðar húsfreyja á Englandi fæddist 5. mars 1919 á Fossi í Mýrdal og lést 20. nóvember 2002.
Foreldrar hennar voru Elías Einarsson bóndi, f. 9. júní 1893, d. 23. janúar 1922 og kona hans Sigríður Vigfúsdóttir húsfreyja, síðar bústýra á Hamri við Skólaveg 33, f. 1. apríl 1893, d. 26. júní 1972.

Börn Elíasar og Sigríðar:
1. Vigfús Ragnar Elíasson bifreiðastjóri, f. 15. september 1917, d. 30. október 2010. Kona hans Árdís Olga Steingrímsdóttir, látin.
2. Þuríður Elíasdóttir húsfreyja á Englandi, f. 5. mars 1919, d. 20. nóvember 2002. Maður hennar Reymond Mountain.
3. Einar Elíasson verslunarmaður í Reykjavík, f. 13. nóvember 1921, d. 7. ágúst 2006. Fyrsta kona hans Hulda Gígja Geirsdóttir. Önnur kona hans Elín Teitsdóttir. Síðasta kona hans Þórdís Árnadóttir.

Þuríður var með foreldrum sínum á Fossi til 1922, en faðir hennar lést á því ári.
Hún fór til Eyja, var hjá Jóni föðurbróður sínum og Ólöfu konu hans til 1933, en fór þá til Reykjavíkur, var þar afgriðslustúlka 1939.
Þuríður flutti til Englands, giftist Reymond Mountain lögfræðingi. Þau eignuðust fjögur börn, bjuggu í Bromley.
Börn þeirra:
1. Robert Mountain.
2. Þórey Erla Mountain.
3. Linda Elísabet Mountain.
4. Karen Mountain.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.