„Þorsteinn Víglundsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
m
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Þorsteinn Þórður Víglundsson''' fæddist 19. október árið 1899 að Melum í Mjóafirði. Foreldrar hans voru Jónína Guðrún Þorsteinsdóttir og Víglundur Þorgrímsson. Á barnsaldri var hann tekinn í fóstur að Hóli í Norðfirði til hjónanna Stefaníu Guðjónsdóttur og Vigfúsar Sigurðssonar. Eftir nám í Barnaskóla Norðfjarðar lá leiðin í Búnaðarskólann á Hvanneyri og varð hann búfræðingur tvítugur að aldri. Þorsteinn stundaði nám í Noregi árin 1921-1923 í lýðháskóla nálægt Björgvin, Noregi og ári seinna lauk hann lokaprófi í nokkrum greinum í menntaskóla á Suður-Mæri. Eftir heimkomuna fór Þorsteinn í Kennaraskóla Íslands og tók hann lokapróf þar árið 1927. Strax um haustið 1927 flutti hann til [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyja]] ásamt konu sinni, Ingigerði Jóhannsdóttur, en þá voru þau nýgift.  
[[Mynd:Þorsteinn Víglundsson.jpg|thumb|200px|Þorsteinn Þ. Víglundsson.]]'''Þorsteinn Þórður Víglundsson''' fæddist 19. október árið 1899 að Melum í Mjóafirði. Foreldrar hans voru Jónína Guðrún Þorsteinsdóttir og Víglundur Þorgrímsson. Á barnsaldri var hann tekinn í fóstur að Hóli í Norðfirði til hjónanna Stefaníu Guðjónsdóttur og Vigfúsar Sigurðssonar. Eftir nám í Barnaskóla Norðfjarðar lá leiðin í Búnaðarskólann á Hvanneyri og varð hann búfræðingur tvítugur að aldri. Þorsteinn stundaði nám í Noregi árin 1921-1923 í lýðháskóla nálægt Björgvin, Noregi og ári seinna lauk hann lokaprófi í nokkrum greinum í menntaskóla á Suður-Mæri. Eftir heimkomuna fór Þorsteinn í Kennaraskóla Íslands og tók hann lokapróf þar árið 1927. Strax um haustið 1927 flutti hann til [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyja]] ásamt konu sinni, Ingigerði Jóhannsdóttur, en þá voru þau nýgift.  

Þangað fór hann til þess að taka við stöðu skólastjóra [[Unglingaskólinn í Vestmannaeyjum|Unglingaskólans í Vestmannaeyjum]]. Hann sinnti því starfi þar til árið 1963. Auk skólastjórnar sinnti Þorsteinn fjölmörgum störfum og áhugamálum þ.á.m. gaf hann út tímaritið [[Blik]] annað hvert ár í 44 ár, var virkur í [[Verkamannafélagið Drífandi|Verkamannafélaginu Drífanda]], safnaði ýmsum forn- og menningarmunum í [[Byggðasafn Vestmannaeyja]], samdi norsk-íslenska orðabók, vann að stækkun [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólans]], var [[Sparisjóður Vestmannaeyja|sparisjóðsstjóri]] og þannig mætti lengi telja. Á efri árum hlaut Þorsteinn [[Heiðursborgarar|heiðursborgaranafnbót]] í Vestmannaeyjum fyrir framlag sitt til menningarmála.

921

breyting

Leiðsagnarval