„Þorleifur Jónsson (Bólstaðarhlíð)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Þorleifur Jónsson (Bólstaðarhlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 3: Lína 3:

Þorleifur ólst upp hjá móður sinni, fluttist með henni til Eyja 1954, var með henni á [[Heiðarvegur|Heiðarvegi 20]] og á [[Svalbarð]]i. Hann fluttist með móður sinni að Bólstaðarhlíð, er foreldrar hennar fluttust þangað 1959. Þar bjuggu þau fram að Gosi, en fluttust þá til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu síðan.

Þorleifur ólst upp hjá móður sinni, fluttist með henni til Eyja 1954, var með henni á [[Heiðarvegur|Heiðarvegi 20]] og á [[Svalbarð]]i. Hann fluttist með móður sinni að Bólstaðarhlíð, er foreldrar hennar fluttust þangað 1959. Þar bjuggu þau fram að Gosi, en fluttust þá til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu síðan.

Þorleifur lauk landsprófi við [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólann]] 1964 og stúdentsprófi við Menntaskólann á  1967.

Þorleifur lauk landsprófi við [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólann]] 1964 og stúdentsprófi við Menntaskólann á  Akureyri 1967.

Hann nam ensku og latínu við Háskóla Íslands og lauk þar
Hann nam ensku og latínu við Háskóla Íslands og lauk þar
BA-prófi, sigldi til Bretlands og lauk þar doktorsprófi í háskólanum í Nottingham.

BA-prófi, sigldi til Bretlands og lauk þar doktorsprófi í háskólanum í Nottingham.

Lína 16: Lína 16:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
*Íslendingabók.is.
*Íslendingabók.is.
*Morgunblaðið 11. febrúar 2011. Minning Klöru Þorleifsdóttur.
*Morgunblaðið 11. febrúar 2011. Minning Klöru Þorleifsdóttur.

Núverandi breyting frá og með 19. september 2018 kl. 20:02

Dr. Þorleifur Jónsson frá Bólstaðarhlíð, kennari, bókavörður fæddist 14. maí 1948 á Litlanesi við Reykjarfjörð í Strand.
Foreldrar hans voru Klara Þorleifsdóttir vinnukona, verkakona, starfsmaður á rannsóknastofu, f. 25. júlí 1926 á Gjögri við Reykjarfjörð, d. 30. janúar 2011 í Reykjavík, og barnsfaðir hennar Jón Hjaltason lögfræðingur, f. 27. maí 1924, d. 7. desember 2017.

Þorleifur ólst upp hjá móður sinni, fluttist með henni til Eyja 1954, var með henni á Heiðarvegi 20 og á Svalbarði. Hann fluttist með móður sinni að Bólstaðarhlíð, er foreldrar hennar fluttust þangað 1959. Þar bjuggu þau fram að Gosi, en fluttust þá til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu síðan.
Þorleifur lauk landsprófi við Gagnfræðaskólann 1964 og stúdentsprófi við Menntaskólann á Akureyri 1967.
Hann nam ensku og latínu við Háskóla Íslands og lauk þar BA-prófi, sigldi til Bretlands og lauk þar doktorsprófi í háskólanum í Nottingham.
Þorleifur kenndi við Kennaraháskólann, en varð bókavörður við Háskóla-Landsbókasafnið, nú Þjóðarbókhlaðan. Þar starfaði hann frá 1978 til starfsloka.

1. Kona Þorleifs, (20. september 1984), er Halldóra Andrésdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 20. september 1952. Foreldrar hennar voru Andrés Björnsson Ólafsson bifvélavirki, f. 23. maí 1921, d. 26. júlí 1989, og Þorgerður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1925, d. 30. ágúst 2006.

Börn þeirra:
1. Andrés Þorleifsson lögfræðingur, f. 27. desember 1985.
2. Hjalti Þorleifsson bókmenntafræðingur, f. 3. september 1989.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
• Íslendingabók.is.
• Morgunblaðið 11. febrúar 2011. Minning Klöru Þorleifsdóttur.
• Þorleifur Jónsson.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.