„Þorlaugargerði“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Húsið '''Þorlaugargerði eystra''' stóð utan byggðar.
Húsið '''Þorlaugargerði eystra''' stendur utan byggðar, fyrir ofan hraun.  Þorlaugargerðisjarðirnar eru tvær, og aðgreindar sem ''eystra'' og ''vestra.''
Þorlaugargerði eystra var talin ein af betri bújörðunum á vestmanneyskan mælikvarða, með 3-4 kúgildi og um 50 ær. Getið er um búsetu þar langt aftur í aldir og hafa þar margir búið í tímans rás.


Árið 1905 fengu jörðina til ábúðar [[Jón Pétursson í Þorlaugargerði|Jón Pétursson]] bátasmiður og formaður og kona hans, [[Rósa Eyjólfsdóttir]]. Byggðu þau húsið upp og bjuggu þar rausnarbúi. Uppeldissonur þeirra [[Jón Guðjónsson (1903)|Jón Guðjónsson]] frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], tók við búi eftir þau og bjó á jörðinni ásamt konu sinni [[Guðrún Jónsdóttir (1909)|Guðrúnu Jónsdóttur]] frá [[Suðurgarður|Suðurgarði]] fram yfir miðja síðustu öld.
Dóttir þeirra, [[Ingibjörg Jónsdóttir (1934)|Ingibjörg Jónsdóttir]], hefur búið þar frá 1957 ásamt manni sínum, [[Garðar Arason|Garðari Arasyni]]. Búskapur hefur ekki verið stundaður í Þorlaugargerði eystra síðan 1966, nema frístundabúskapur en túnin sem fylgja jörðinni hafa verið nytjuð af frístundabændum í Eyjum.
Margir telja að Þorlaugargerði eystra standi á fallegasta bæjarstæði á [[Heimaey]], þar sem bæði er fjölbreytt og fagurt landslag kringum húsið sem og ægifagurt útsýni yfir suðurhluta Heimaeyjar og suðureyjarnar.
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 2. desember 2005 kl. 13:27

Húsið Þorlaugargerði eystra stendur utan byggðar, fyrir ofan hraun. Þorlaugargerðisjarðirnar eru tvær, og aðgreindar sem eystra og vestra. Þorlaugargerði eystra var talin ein af betri bújörðunum á vestmanneyskan mælikvarða, með 3-4 kúgildi og um 50 ær. Getið er um búsetu þar langt aftur í aldir og hafa þar margir búið í tímans rás.

Árið 1905 fengu jörðina til ábúðar Jón Pétursson bátasmiður og formaður og kona hans, Rósa Eyjólfsdóttir. Byggðu þau húsið upp og bjuggu þar rausnarbúi. Uppeldissonur þeirra Jón Guðjónsson frá Oddsstöðum, tók við búi eftir þau og bjó á jörðinni ásamt konu sinni Guðrúnu Jónsdóttur frá Suðurgarði fram yfir miðja síðustu öld.

Dóttir þeirra, Ingibjörg Jónsdóttir, hefur búið þar frá 1957 ásamt manni sínum, Garðari Arasyni. Búskapur hefur ekki verið stundaður í Þorlaugargerði eystra síðan 1966, nema frístundabúskapur en túnin sem fylgja jörðinni hafa verið nytjuð af frístundabændum í Eyjum.

Margir telja að Þorlaugargerði eystra standi á fallegasta bæjarstæði á Heimaey, þar sem bæði er fjölbreytt og fagurt landslag kringum húsið sem og ægifagurt útsýni yfir suðurhluta Heimaeyjar og suðureyjarnar.