Þorkell Sæmundsson (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2015 kl. 13:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2015 kl. 13:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|250px|''Þorkell Sæmundsson. '''Þorkell Sæmundsson''' útgerðarmaður, sjómaður og múrari á Reynistað fæddist 27. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þorkell Sæmundsson.

Þorkell Sæmundsson útgerðarmaður, sjómaður og múrari á Reynistað fæddist 27. september 1878 í Nikulásarahúsi í Fljótshlíð og lést 2. maí 1963.
Foreldrar hans voru Sæmundur Guðmundsson bóndi í Nikulásarhúsi, f. 18. febrúar 1842, d. 1. ágúst 1922, og kona hans Þórunn Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1850, d. 2. júlí 1938.

Föðursystir Þorkels var
Una Guðmundsdóttir húsfreyja í London, f. 19. apríl 1839, d. 25. apríl 1930.

Þorkell var með foreldrum sínum í æsku, var vinnuhjú í Múlakoti 1901.
Hann fluttist til Eyja 1905 frá Vatnsdal í Fljótshlíð. Oktavía fluttist til Eyja á því ári frá sama bæ.
Hann stundaði sjómennsku og átti í útgerð, lærði síðar múrverk.
Þorkell kvæntist Oktavíu 1906 og 1910 bjuggu þau á Vegamótum. Þau fengu byggingu fyrir Reynistaðalóðinni 1911, voru komin á Reynistað, nýbyggt hús sitt 1912. Þar bjuggu þau til 1937, er þau fluttust til Reykjavíkur.
Þorkell hætti sjómennsku og stundaði múrverk. Hann fékk iðnbréf útgefið í Reykjavík 1928 og varð félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur 1932. Oktavía lést 1960 og Þorkell 1963.

Kona Þorkels, (9. desember 1906), var Oktavía Guðmundsdóttir, (prþj.b. Oktovina), f. 18. maí 1882, d. 29. september 1960.
Börn þeirra hér:
1. Haraldur Þorkelsson járnsmiður, f. 23. september 1901 í Fljótshlíð, d. 13. september 1991.
2. Guðmundína Lilja Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1908 á Vegamótum, síðast í Reykjavík, d. 9. júlí 1995.
3. Ágústa Olga Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1909 á Vegamótum, d. 14. nóvember 2003.
4. Ísleifur Þorkelsson innheimtumaður, f. 6. desember 1915 á Reynistað, d. 16. ágúst 1987.
5. Þórarinn Júlíus Þorkelsson húsgagnasmiður, f. 18. maí 1917 á Reynistað, d. 12. júlí 1988.
6. Skúli Þorkelsson rakari, f. 27. júlí 1921 á Reynistað, d. 10. febrúar 2003.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Múraratal og steinsmiða 1-2. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ásmundsson. Þjóðsaga 1967 og 1993.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.