„Þorkell Sæmundsson (Reynistað)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:
Foreldrar hans voru Sæmundur Guðmundsson bóndi í Nikulásarhúsi, f. 18. febrúar 1842, d. 1. ágúst 1922, og kona hans Þórunn Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1850, d. 2. júlí 1938.
Foreldrar hans voru Sæmundur Guðmundsson bóndi í Nikulásarhúsi, f. 18. febrúar 1842, d. 1. ágúst 1922, og kona hans Þórunn Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1850, d. 2. júlí 1938.

Föðursystir Þorkels var

Bræður Þorkels voru m.a.:

1. [[Markús Sæmundsson (Fagurhól)|Markús Sæmundsson]] í [[Fagurhóll|Fagurhól]].

2. [[Sigurður Sæmundsson (Hallomsstað)|Sigurður Sæmundsson]] á [[Hallormsstaður|Hallormsstað]].

Föðursystir þeirra var

[[Una Guðmundsdóttir (London)|Una Guðmundsdóttir]] húsfreyja í [[London]], f. 19. apríl 1839, d. 25. apríl 1930.

[[Una Guðmundsdóttir (London)|Una Guðmundsdóttir]] húsfreyja í [[London]], f. 19. apríl 1839, d. 25. apríl 1930.

Útgáfa síðunnar 13. september 2015 kl. 14:51

Þorkell Sæmundsson.

Þorkell Sæmundsson útgerðarmaður, sjómaður og múrari á Reynistað fæddist 27. september 1878 í Nikulásarahúsi í Fljótshlíð og lést 2. maí 1963.
Foreldrar hans voru Sæmundur Guðmundsson bóndi í Nikulásarhúsi, f. 18. febrúar 1842, d. 1. ágúst 1922, og kona hans Þórunn Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1850, d. 2. júlí 1938.

Bræður Þorkels voru m.a.:
1. Markús Sæmundsson í Fagurhól.
2. Sigurður Sæmundsson á Hallormsstað.
Föðursystir þeirra var
Una Guðmundsdóttir húsfreyja í London, f. 19. apríl 1839, d. 25. apríl 1930.

Þorkell var með foreldrum sínum í æsku, var vinnuhjú í Múlakoti 1901.
Hann fluttist til Eyja 1905 frá Vatnsdal í Fljótshlíð. Oktavía fluttist til Eyja á því ári frá sama bæ.
Hann stundaði sjómennsku og átti í útgerð, lærði síðar múrverk.
Þorkell kvæntist Oktavíu 1906, fengu inni í Garðinum, voru í Sjóbúð 1907, voru húsfólk á Vegamótum 1908-1912.
Þau fengu byggingu fyrir Reynistaðarlóðinni 1911, voru komin á Reynistað, nýbyggt hús sitt 1912. Þar bjuggu þau til 1937, er þau fluttust til Reykjavíkur.
Þorkell hætti sjómennsku og stundaði múrverk. Hann fékk iðnbréf útgefið í Reykjavík 1928 og varð félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur 1932. Oktavía lést 1960 og Þorkell 1963.

Kona Þorkels, (9. desember 1906), var Oktavía Guðmundsdóttir, (prþj.b. Oktovina), f. 18. maí 1882, d. 29. september 1960.
Börn þeirra hér:
1. Haraldur Þorkelsson járnsmiður, f. 23. september 1901 í Fljótshlíð, d. 13. september 1991.
2. Guðmundína Lilja Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1908 á Vegamótum, síðast í Reykjavík, d. 9. júlí 1995.
3. Ágústa Olga Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1909 á Vegamótum, d. 14. nóvember 2003.
4. Ísleifur Þorkelsson innheimtumaður, f. 6. desember 1915 á Reynistað, d. 16. ágúst 1987.
5. Þórarinn Júlíus Þorkelsson húsgagnasmiður, f. 18. maí 1917 á Reynistað, d. 12. júlí 1988.
6. Skúli Þorkelsson rakari, f. 27. júlí 1921 á Reynistað, d. 10. febrúar 2003.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Manntöl.
• Múraratal og steinsmiða 1-2. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ásmundsson. Þjóðsaga 1967 og 1993.
• Prestþjónustubækur.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.