Þorbjörn Jónsson (Dalahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2014 kl. 15:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2014 kl. 15:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörn Jónsson tómhúsmaður í Dalahjalli fæddist 1765 og lést í Dalahjalli 20. febrúar 1811 „úr megrusótt‟.

Þorbjörn var kvæntur vinnumaður í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum 1801.
Hann lést 1811 í Eyjum.
Þau Kristín voru bæði vinnuhjú í Bakkahjáleigu 1801 með börnin Önnu 3 ára og Ástríði eins árs. Þau eignuðust Jón fyrir brottför úr Landeyjum. Þetta voru einu börnin, sem lifðu. Þau 5 börn, sem fæddust í Eyjum dóu nýfædd eða fæddust andvana.

I. Barn Þorbjörns með Guðlaugu Þorsteinsdóttur vinnukonu, síðar í Miðey í A-Landeyjum, f. um 1767:
1. Anna Þorbjörnsdóttir, f. 1798, d. 11. mars 1849.

II. Kona Þorbjörns var Kristín Þórólfsdóttir húsfreyja, f. 1765, d. 11. október 1830.
Börn þeirra hér:
2. Ástríður Þorbjörnsdóttir, f. 22. september 1799, d. 29. apríl 1883.
3. Jón Þorbjörnsson í Dalahjalli, f. 1801 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 3. október 1830 af slysförum.
4. Margrét Þorbjörnsdóttir, f. í júní 1802, dó 8. júní 1802 úr ginklofa.
5. Valgerður Þorbjörnsdóttir, f. 10. september 1803, dó 21. september 1803 úr ginklofa.
6. Andvana barn, f. 21. júlí 1805.
7. Vilhjálmur Þorbjörnsson, f. 26. september 1807, d. 3. október 1807 úr ginklofa.
8. Andvana barn, jarðað 7. apríl 1809.


Heimildir