Þingholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2007 kl. 09:26 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2007 kl. 09:26 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Þingholt stóð við Heimagötu 2a en var ætíð skráð við Kirkjuveg 5. Þórunn Jónsdóttir lét byggja húsið og rak veitingasölu í húsinu. Lengi bjuggu í Þingholti Páll Sigurgeir Jónasson og Þórsteina Jóhannsdóttir kona hans og börn þeirra. Frá þeim er kominn mikill ættbogi og Þingholtsfjölskyldan einhver sú stærsta í Eyjum, þekkt fyrir sjósókn og útgerð.