Þórarinn Jónsson (Ármótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. september 2019 kl. 13:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. september 2019 kl. 13:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórarinn Gísli Jónsson útgerðarmaður, skrifstofumaður, bókhaldari, forstjóri, síðast í Hafnarfirði, fæddist 18. maí 1921 og lést 24. apríl 1987.
Foreldrar hans voru Jón Gíslason útgerðarmaður, verkstjóri, verkamaður, þá í Sandprýði, síðar á Ármótum (Ármóti), og kona hans Þórunn Markúsdóttir húsfreyja, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921.

Þórarinn ólst upp hjá föður sínum, bústýrunni Helgu ömmu sinni og fjölskyldunni á Ármótum.
Þar bjó hann enn 1949, titlaður skrifstofumaður, en hann annaðist bókhald ýmissa útgerða og annarra fyrirtækja. Á árunum 1963-1974 var Þórarinn forstjóri Bátaábyrgðarfélagsins.
Hann stóð að útgerð Þórunnar VE- með Markúsi bróður sínum og Jóni föður þeirra.
Þau Elín reistu húsið Ásaveg 18 1955 og bjuggu þar til Goss, en fluttust til Hafnarfjarðar, bjuggu á Mosabarði 9.
Þórarinn Gísli lést 1987 og Elín 1998.

Kona Þórarins, (31. desember 1954), var Elín Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1924, d. 29. ágúst 1998.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Pétur Þórarinsson, f. 10. febrúar 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.