Þórarinn Jónsson (Ármótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 17:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórarinn Gísli Jónsson útgerðarmaður, skrifstofumaður, síðast í Hafnarfirði, fæddist 18. maí 1921 og lést 24. apríl 1987.
Foreldrar hans voru Jón Gíslason útgerðarmaður, verkstjóri, verkamaður, þá í Sandprýði, síðar á Ármótum (Ármóti), og kona hans Þórunn Markúsdóttir húsfreyja, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921.

Þórarinn ólst upp hjá föður sínum, bústýrunni Helgu ömmu sinni og fjölskyldunni á Ármótum.
Þar bjó hann enn 1949, titlaður skrifstofumaður.
Hann stóð að útgerð Þórunnar VE- með Markúsi bróður sínum og Jóni föður þeirra.
Þau Elín reistu húsið Ásaveg 18 1955 og bjuggu þar til Goss, en fluttust til Hafnarfjarðar.

Kona Þórarins, (31. desember 1954), var Elín Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1924, d. 29. ágúst 1998.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Pétur Þórarinsson, f. 10. febrúar 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.