Þóra Valdimarsdóttir (Kirkjubóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2021 kl. 15:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2021 kl. 15:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þóra Valdimarsdóttir''' frá Hálsi í Svarfaðardal, húsfreyja fæddist 20. júní 1902 í Litla-Árskógi og lést 10. ágúst 1994.<br> Foreldrar hennar voru Guðlaugur ''Va...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Valdimarsdóttir frá Hálsi í Svarfaðardal, húsfreyja fæddist 20. júní 1902 í Litla-Árskógi og lést 10. ágúst 1994.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Valdimar Guðmundsson skipstjóri í Hrísey, f. 11. júlí 1860, d. 20. apríl 1938, og kona hans Þórdís Björg Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 29. október 1867, d. 26. september 1945.
Fósturforeldrar Þóru frá tveggja ára aldri voru Jón Jónsson bóndi, skipstjóri á Hálsi, f. 23. janúar 1854, d. 2. mars 1930, og kona hans Guðrún Katrín Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1858, d. 29. október 1943.

Þóra var með foreldrum sínum fyrstu tvö ár sín, en síðan með fósturforeldrum sínum á Hálsi.
Hún flutti til Eyja 1926.
Þau Kristján giftu sig 1926, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Hofsstöðum við Brekastíg 30 í fyrstu, á Heiði við Sólhlíð 19, á Þingvöllum, í Nýjabæ, en lengst á Kirkjubóli og bjuggu þar til Goss. Síðast bjuggu þau á Melaheiði 15 í Kópavogi.
Kristján lést 1983 og Þóra 1994.

I. Maður Þóru, (30. desember 1926), var Kristján Kristófersson verkamaður, húsgagnabólstrari, f. 4. febrúar 1901, d. 8. ágúst 1983.
Börn þeirra:
1. Valdimar Þórarinn Kristjánsson, f. 9. maí 1927 á Hofsstöðum, d. 3. október 2015. Kona hans Guðrún K. Þorgeirsdóttir.
2. Jón Kristjánsson, f. 26. febrúar 1929 á Heiði, d. 1999. Kona hans Ingibjörg Sigrún Karlsdóttir.
3. Kristbjörg Guðrún Kristjánsdóttir, f. 31. október 1931 á Þingvöllum, d. 15. mars 2018. Maður hennar Bergur Heiðmar Vilhjálmsson.
Fósturbarn þeirra, barn Valdimars sonar þeirra:
4. Kristján Þór Valdimarsson, f. 11. apríl 1955. Móðir hans var Laufey Guðmundsdóttir verkakona í Reykjavík, f. 3. mars 1923, d. 20. desember 1981. Kona Kristjáns Þórs var Íris Jónsdóttir, látin.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.