Þóra Haraldsdóttir (Nikhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 15:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2018 kl. 15:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þóra Haraldsdóttir''' frá Nikhól, húsfreyja fæddist 4. apríl 1925 í Litla-Gerði og lést 13. apríl 2001.<br> Foreldrar hennar voru Harald...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Haraldsdóttir frá Nikhól, húsfreyja fæddist 4. apríl 1925 í Litla-Gerði og lést 13. apríl 2001.
Foreldrar hennar voru Haraldur Þorsteinsson frá Grímsstöðum í V-Landeyjum, verkamaður í Nikhól og á Grímsstöðum, f. 5. janúar 1902, d. 11. desember 1974, og kona hans Matthildur Málfríður Gísladóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1898 í Norðurhjáleigu í Álftaveri, d. 31. mars 1976.

Börn Matthildar og Haraldar:
1. Þóra Haraldsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1925 í Litla-Gerði, d. 13. apríl 2001.
2. Þorsteina Guðbjörg Haraldsdóttir, f. 14. júní 1926 í Nikhól, d. 27. mars 1927.
3. Gunnar Þorbjörn Haraldsson vélstjóri, húsvörður, f. 21. apríl 1928 í Nikhól, d. 30. desember 2010.
4. Óskar Haraldsson netagerðarmeistari, f. 7. ágúst 1929 í Nikhól, d. 22. ágúst 1985.
5. Guðbjörg Erla Haraldsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, verkakona, f. 21. júlí 1931 í Nikhól, d. 5. júní 2018..

Þóra var með foreldrum sínum í æsku, ólst upp í Nikhól, Hásteinsvegi 38 og bjó þar enn 1945. Hún bjó hjá þeim á Grímsstöðum við giftingu.
Þau Júlíus giftu sig 1947, eignuðust tvö börn. Lengst bjuggu hjónin á Heiðarvegi 54.
Þóra lést 2001 og Júlíus 2011.

I. Maður Þóru, (24. maí 1947), var Júlíus Vilhelm Hallgrímsson sjómaður, skipstjóri, netagerðarmaður f. 20. ágúst 1921 í Sætúni, d. 20. mars 2011 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.

Börn þeirra:
1. Hallgrímur Júlíusson netagerðarmeistari, f. 25. maí 1946 á Grímsstöðum.
2. Haraldur Júlíusson netagerðarmeistari, f. 11. september 1947 á Grímsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.