Þórður Benediktsson (framkvæmdastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 15:59 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 15:59 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Benediktsson, verkstjóri, var landskjörinn þingmaður árið 1942. Hann var fæddur að Grenjaðarstað í Suður-Þingeyjarsýslu 10. mars 1898. Þórður lést í Reykjavík 14. apríl 1982. Foreldrar hans voru Benedikt (fæddur 5. nóvember 1840, dáinn 26. janúar 1915) prófastur þar Kristjánsson bónda í Stóradal Jónssonar og síðari kona hans Ólöf Ásta (fædd 20. Júní 1859, dáin 22. ágúst 1929) Þórarinsdóttir bónda að Víkingavatni í Kelduhverfi Björssonar. -K. (23. júní 1923) Anna Camilla (fædd 3. júlí 1900) dóttir Ólavs Hansen sjálfseignarbónda í Grundmosegaard á Norður-Sjálandi og konu hans, sem var sænsk að uppruna. Verslunarpróf í Reykjavík 1919. Verslunarmaður í Reykjavík 1919-1920. Dvaldist erlendis 1920-1923. Settist að í Vestmannaeyjum í Febrúar 1924, hafði þar á hendi verkstjórn og starfaði auk þess við fiskmat og verslun. Vann hjá Sambandi íslenskra berklasjúklinga 1943-1974. Framkvæmdastjóri Vöruhappadrættis SÍBS frá stofnun þess 1949 og til 1967. Varaformaður stjórnar Samband íslenskra berklasjúklinga 1946-1954, formaður 1955-1974.

Þórður Benediktsson, verkstjóri og alþingismaður.

Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982