Örnefni

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2005 kl. 16:28 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2005 kl. 16:28 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Örnefnin í Vestmannaeyjum skipta líklega þúsundum. Jafnvel heitið Vestmannaeyjar er örnefni, og eru til ýmsar heimildir um það örnefni, til dæmis í Landnámubók. Ekki er ljóst hverjir hafa búið til örnefnin, og af hvaða tilefni, en víst er að þeim skiptir þúsundum.

Á Heimaey má finna örnefni á borð við Sölvaflá, Illugaskip, Páskahellir og Háhá. Í úteyjum má sjá Austursvelti, Höskuldarhelli, Þolimæði og Bunka, svo að dæmi séu nefnd.

Örnefnaferð um Eyjar

Mynd:Örnefnakort heimaey.PNG Fólk sem kemur til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið, hvort heldur er með flugi eða Herjólfi, tekur líklegast fyrst eftir Einidrangi, sem stendur einn og sér úti í hafi. Miðja vegu milli Einidrangs og Heimaeyjar má finna Þrídranga, sem eru í raun fjórir talsins; Stóridrangur (öðru nafni Háidrangur), Þúfudrangur og Klofadrangur. Fjórði drangurinn, sem sést ekki frá Heimaey, er líklega nafnlaus.

Þegar að komið er að Heimaey sjást Heimaklettur, Miðklettur og Ystiklettur nyrst og austast á eynni. í Miðkletti má sjá Selhelli, og Latur stendur þar hjá. Elliðaey stendur fyrir norðaustan Ystaklett, og Faxasker skýtur upp kollinum þar á milli. Sunnan við Elliðaey má sjá Bjarnarey, en þær eru einu úteyjarnar sem eru austan við Heimaey.

Höfnin

Þegar siglt er um innsiglinguna Skansfjöruna að sjá sunnan megin, en Klettsvík norðan megin á milli fjallanna þriggja. Þegar farið er framhjá Hringskersgarður má sjá Stafkirkjuna á Skansinum fast upp við Nýja Hraunið, ásamt gamla Hervirkinu. í Heimakletti má sjá Hörgareyri.

Í Vestmannaeyjahöfn eru nokkrar bryggjur, t.d. Nausthamarsbryggja, Básaskersbryggja, Friðarhöfn, Binnabryggja.

Þegar að litið er til norðurs frá höfninni má sjá Þrælaeiði, en til vesturs eru Stóra-Klifið, Litla-Klif, Moldai og Háhá. Til austurs má sjá Nýja hraunið, og sunnan við það eru Eldfell og Helgafell.

Bærinn

Miðbær Vestmannaeyja er byggður á aflíðandi brekku sem kallað var Breiðholt áður fyrr, en Breiðholtsbraut heitir Vestmannabraut í dag, og var hún lengsta gata bæjarins fyrir gos. Götur í Vestmannaeyjabæ eru 66 talsins, og eru þær allar malbikaðar nema Reglubraut. Heiðarvegur og Skólavegur eru helstu göturnar sem ganga frá norðri til suðurs, en Strandvegur, Vestmannabraut og Kirkjuvegur þvera þær frá austri til vesturs. Kirkjuvegur sveigir niður til norðurs og gengur meðfram hrauninu niður að Sjómannasundi.

Fjallganga um norðurkletta

Þegar að gengið er meðfram Strandvegi til vesturs frá höfninni er fljótlega komið að Spröngunni. Þaðan er auðvelt að ganga upp á , og þaðan upp á Há-há og Molda. Áður fyrr tíðkaðist það að síga frá Molda niður í Fiskhella og þurrka þar fisk. Ef gengið er til norðurs á toppi Molda má komast út í Náttmálaskarð, en þaðan er greið leið um Eggjar yfir á Dalfjall. Á eggjum Dalfjalls eru krossgötur: Hægt er að halda til norðurs niður á Ufsaberg og þaðan niður í Stafsnes eða Eysteinsvík, eða til vesturs upp á Blátind, eða einfaldlega til suðurs, framhjá Saltabergi og niður ofan í Herjólfsdal.

Í miðjum Herjólfsdal er Tjörnin, en hún er tengd vatnsuppsprettu sem er sunnar í dalnum, nær Molda. Ef farið er vestur frá brunninum sem við vatnsuppsprettuna má sjá Gamla Golfskálann í suðri undir Fiskhellum. Þá er komið að landnámsbænum, þar sem talið er að Herjólfur Bárðarson hafi búið. Þá segir sagan um Vilborgu og Hrafnanna frá því þegar að byggð lagðist í eyði þar.

Meðfram hamrinum

Til vesturs yfir golfvöllinn má finna Kaplagjótu innundir Dalfjalli. Suður af Kaplagjótu er Mormónapollur þar sem að mormónar voru skírðir í stórum stíl um miðja 19. öld. Gengið er svo meðfram hamrinum til suðurs, en þá er hægt að sjá á góðum degi út í úteyjarnar og skerin Álsey, Brand, Geirfuglasker, Suðurey, Surtsey og Súlnasker. Lengra til vesturs má sjá Einidrang og Þrídranga.

Þegar gengið er upp úr Herjólfsdal meðfram hamrinum er gengið yfir Torfmýri, þar sem nú er Golfvöllur. Syðst í Torfmýri, örlítin spöl frá hamrinum, er Hundraðmannahellir, sem frægur varð í Tyrkjaráninu þegar að sagt er að um 100 manns hafi skriðið inn í hann og falið sig frá sjóræningjunum.

Hamarinn títtnefndi kallast Ofanleitishamar. Í daglegu tali er hann kallaður Hamarinn, þar sem að hvað hamra varðar í Vestmannaeyjum er Ofanleitishamar stærstur og mestur. Hann teygir sig frá Þorlaugargerðisgrjótum vestur undir Torfmýri að Kaplagjótu. Talið er nokkuð víst að hamarinn hafi brotnað niður mikið frá um landnámsöld, og að jafnvel hafi Ormsstaðir, bær Orms Herjólfssonar, staðið við hamarinn.