Ólafur Ingileifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 10:39 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 10:39 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ingileifsson, Heiðarbæ, fæddist 9. júní 1891 á Ketilstöðum í Mýrdal og lést 14. febrúar 1968. Árið 1907 fór Ólafur til Vestmannaeyja.

Ólafur var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Sigurjóna Þórðardóttir. Þau eignuðust soninn Karl. Önnur eiginkona Ólafs var Sigurlín Jónsdóttir frá Ólafshúsum. Þriðja eiginkona hans var systir Sigurlínar, Guðfinna Jónsdóttir. Synir þeirra voru Eggert, Einar á Kap og Guðni á Gjafari.

Hann byrjaði formennsku á Svan árið 1912. Upp frá því var Ólafur formaður með ýmsa báta allt til 1935, lengst með Karl eða í 11 ár.

Ólafur var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1922.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.