Ólafur Árnason (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 15:47 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 15:47 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Árnason 1696-1722. Ólafur Árnason, sýslumaður 1696 til 1722, var fyrsti sýslumaðurinn sem var búsettur í Vestmannaeyjum. Hann bjó að Dölum ásamt fjölskyldu sinni. Foreldrar hans voru Árni í Haga Björnsson á Laxamýri Magnússonar og kona hans Þóra Bergþórsdóttir lögréttumanns. Hann varð fyrst lögsagnari í Vestmannaeyjum 1693 en skipaður sýslumaður 1696 og gengi því embætti til æviloka. Hann hlaut viðurnefnið „klaki“, sem menn ætla vegna þess hve hraustur hann var og harðger. Kona hans var Emerentiana (fædd um 1665) Pétursdóttir prests að Ofanleiti í Vestmannaeyjum, Gissurarsonar og voru börn þeirra þrjú, Vilborg, Björn og Valgerður.