Í Herjólfsdal (1985)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 14:00 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 14:00 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1984 1985 1986

Í Herjólfsdal var þjóðhátíðarlagið árið 1985.

Í Herjólfsdal vil ég vera
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmarnir bera
brekkurnar óma af söng.
Mig heilla dalsins hlýju ágústnætur
við húmsins skýru ævintýrarsýn.
Logar bálið lýsir klettarætur
leiðist æskan fram með tjarnarbrún.
Hér vil ég lifa, leika í skjóli fjalla
og líta yfir ævifarinn veg.
Ef að ég mætti öll þau afturkalla
árin sem að liðu á hulduveg.
Í Herjólfsdal vil ég vera
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmar bera
brekkurnar óma af söng.
Hvað er fegra en dalsins frjálsu stundir
fannhvít tjöld og bál í klettasal
Fagra söngva fjöllin taka undir
friður ríkir inn í Herjólfsdal.
Í Herjólfsdal vil ég vera,
vaka þar kvöldin löng.
Ævintýrin bjarmarnir bera
brekkurnar óma af söng.


Lag: Lýður Ægisson
Texti: Guðjón Weih