„ÍBV“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(48 millibreytingar ekki sýndar frá 5 notendum)
Lína 1: Lína 1:
== Undanfari og upphaf ==
[[Mynd:Ibv-logo.png|thumb|400 px|ÍBV]]
Eins og nafn Íþróttabandalags Vestmannaeyja gefur til kynna er þetta bandalag margra mismunandi hópa. Mörg félög höfðu verið í Eyjum bæði fyrir stofnun bandalagsins og einnig hafa mörg félög starfað í gegnum árin samhliða ÍBV. Félögin [[Íþróttafélagið Þór|Þór]] og [[Týr]] höfðu verið starfandi frá öðrum og þriðja áratug 20. aldarinnar og hvatt hvort annað áfram með stöðugri samkeppni. Þessi félög, ásamt öðrum sértækari, höfðu haft með sér félög sem kepptu á landsmótum. Hétu félögin Íþróttaráð Vestmannaeyja, ÍRV, og undir stjórn [[Einar ríki|Einars ríka]] var keppt fyrir hönd KV á landsmótum. Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar varð hnignun í íþróttamálum í Eyjum vegna þess að ungt fólk fékk vinnu hjá hernum og við síldveiðar á Norðurlandi. Með nýjum íþróttalögum var óskað eftir því að samband íþróttafélaga í Vestmannaeyjum væri stofnað. Hinn 6. maí 1945 var stofnað bandalag íþróttafélaga í Vestmannaeyjum, Íþróttabandalag Vestmannaeyja. Félögin höfðu eitthvað keppt í eigin nafni upp á meginlandinu fyrir stofnun bandalagsins en nú skyldi keppa í nafni ÍBV utan héraðs.


Fyrsta sumarið (árið 1945), sem héraðssamband ÍBV var við stjórnvölinn, var vel skipulögð starfsemi og vissu félögin strax um vorið hvenær þau ættu að sjá um mót, hvort sem var í knattspyrnu, handknattleik eða frjálsum íþróttum. Ekki var keppt í sundi þetta sumar því viðgerðir stóðu yfir á lauginni en strax um haustið hófst [[sundkennsla]] hjá [[Friðrik Jesson|Friðriki Jessyni]].
*[[Annáll ÍBV íþróttafélags í 20 ár - Þar sem hjartað slær]]
 
Knattspyrnan þurfti að heyja baráttu við fiskinn sem laðaði menn á vertíðir. Það var þó á hásumrin sem menn gáfu sér tíma til að sparka í nokkra bolta. Handknattleikurinn var hins vegar mjög vinsæll og þetta tiltekna sumar hafði uppgangur aldrei verið meiri. Mörg mót voru haldin og voru margir áhorfendur og þá aðallega eldri konur. Frjálsar íþróttir höfðu vaxið í vinsældum frá 1930 og á fjórða og fimmta áratugnum voru Vestmannaeyingar stórveldi í frjálsum íþróttum og unnu til fjölda verðlauna.
 
== Sagan ==
Ekki er vitað mikið um fyrstu ár ÍBV þar sem allar heimildir glötuðust af einhverjum ástæðum. Fljótega var farið að óska eftir góðum íþróttavelli og árið 1954 hófust framkvæmdir við íþróttavöllinn í [[Langalág|Löngulág]]. Mikil gróska var á þessum árum í öllum greinum. Íþróttagreinar, sem meðal annars voru iðkaðar, eru knattspyrna, handknattleikur, sund, fimleikar, glíma og körfuknattleikur.
 
Knattspyrnan hefur verið ein aðalíþróttagreinin sem iðkuð hefur verið í Vestmannaeyjum og hefur áhugi á henni aukist í gegnum árin.
 
== Verðlaun og meistarar ==
=== Íþróttamenn ársins ===
*'''1978''': [[Óskar Pálsson]], lyftingar
*'''1979''': [[Gunnar Steingrímsson]], lyftingar
*'''1980''': [[Páll Pálmason]], knattspyrna
*'''1981''': [[Sigmar Þröstur Óskarsson]], handbolti
*'''1982''': [[Sigfríð Björgvinsdóttir]], sund
*'''1983''': [[Gylfi Garðarsson]], golf
*'''1984''': [[Árni Sigurðsson]], sund
*'''1985''': [[Þorsteinn Gunnarsson]], knattspyrna
*'''1986''': [[Birgir Ágústsson]], golf
*'''1987''': [[Sindri Óskarsson]], golf
*'''1988''': [[Nökkvi Sveinsson]], knattspyrna
*'''1989''': [[Sigurður Gunnarsson]], handbolti
*'''1990''': [[Logi Jes Kristjánsson]], sund
*'''1991''': Sigmar Þröstur Óskarsson, handbolti
*'''1992''': [[Þorsteinn Hallgrímsson]], golf
*'''1993''': Þorsteinn Hallgrímsson, golf
*'''1994''': [[Andrea Atladóttir]], handbolti
*'''2004''': [[Margrét Lára Viðarsdóttir]], knattspyrna
*'''2005''': [[Örlygur Helgi Grímsson]], golf
 
=== Meistaraflokkur karla knattspyrnu ===
'''Íslandsmeistarar í efstu deild:'''
*'''1979'''
*'''1997'''
*'''1998'''
 
'''Bikarmeistarar''':
*'''1968''' ÍBV-KRb 2:1
*'''1972''' ÍBV-FH 2:0
*'''1981''' ÍBV-Fram 3:2
*'''1998''' ÍBV-Leiftur 2:0
 
'''2. sæti í bikarkeppni''':
*'''1970''' ÍBV-Fram 1:2
*'''1980''' ÍBV-Fram 1:2
*'''1983''' ÍBV-ÍA 1:2
*'''1996''' ÍBV-ÍA 1:2
*'''1997''' ÍBV-Keflavík 1:1, 0:0, 4:5 Víti
*'''2000''' ÍBV-ÍA 1:2
 
'''Deildarbikarmeistarar''':
*'''1997''' ÍBV - Valur 3:2
 
'''Sigurvegarar í næstefstu deild''':
*'''1967'''
*'''1976'''
*'''1985'''
 
'''Meistarar Meistaranna''':
*'''1980''' ÍBV-Fram 0:0, 4:3 í vítakeppni
*'''1984''' ÍBV-ÍA 2:1
*'''1996''' ÍBV-ÍA 5:3
*'''1998''' ÍBV-Leiftur 2:1
 
'''Drago-styttan''' (prúðasta lið deildar miðað við fæst gul og rauð spjöld):
*'''1976''' (næstefsta deild)
*'''1996'''
*'''1997'''
*'''1998'''
 
'''Prúðmennskuverðlaun KSÍ og MasterCard''': (prúðasta lið valið af nefnd):
*'''1995'''
*'''1996'''
*'''1997'''
*'''1998'''
 
'''Prúðasti leikmaður efstu deildar''':
*'''1996''' [[Hlynur Stefánsson]]
*'''1997''' [[Ívar Bjarklind]]
*'''1998''' [[Steingrímur Jóhannesson]]
*'''2003''' [[Hjalti Jóhannesson]]
 
'''Besti leikmaður efstu deildar''':
*'''1997''' [[Tryggvi Guðmundson]]
*'''2000''' Hlynur Stefánsson
 
'''Efnilegasti leikmaður efstu deildar''':
*'''1995''' Tryggvi Guðmundson
*'''1997''' [[Sigurvin Ólafsson]]
*'''2002''' [[Gunnar Heiðar Þorvaldsson]]
 
'''Markakóngar í efstu deild''':
*'''1972''' [[Tómas Pálsson]] 15 mörk
*'''1981''' [[Sigurlás Þorleifsson]] 12 mörk
*'''1982''' Sigurlás Þorleifsson 10 mörk
*'''1997''' Tryggvi Guðmundsson 19 mörk
*'''1998''' Steingrímur Jóhannesson 16 mörk
*'''1999''' Steingrímur Jóhannesson 12 mörk
*'''2004''' Gunnar Heiðar Þorvaldsson 12 mörk
 
=== Meistaraflokkur kvenna knattspyrnu ===
'''Bikarkeppnin''':
*'''2003''' ÍBV-Valur 1:3, 2. sæti
*'''2004''' ÍBV-Valur 2:0, Bikarmeistarar
 
'''Deildarbikarmeistarar''':
*'''2004''' ÍBV-Valur 3:1
 
'''Knattspyrnukona Íslands''':
*'''2004''' [[Margrét Lára Viðarsdóttir]]
 
'''Markahæstar í efstu deild''':
*'''2004''' Margrét Lára Viðarsdóttir, 23 mörk
 
'''Prúðasti leikmaður efstu deildar''':
*'''2003''' [[Íris Sæmundsdóttir]]
*'''2004''' [[Olga Færseth]]
 
'''Kvennabikarinn''' (veittur fyrir gott starf í kvennaknattspyrnu):
*'''1998'''
 
=== Meistaraflokkur karla handknattleik ===
'''Deildarmeistarar 2. deild''':
*'''1988'''
*'''1995'''
 
'''Bikarmeistarar''':
*'''1991'''
 
=== Meistaraflokkur kvenna handknattleik ===
'''Íslandsmeistar''':
*'''2000'''
*'''2003'''
*'''2004'''
 
'''Bikarmeistarar''':
*'''2001'''
*'''2003'''
*'''2004'''
 
'''Deildarmeistarar''':
*'''2003'''
*'''2004'''
 
'''Meistarar meistaranna''':
*'''2000'''
*'''2001'''
*'''2002'''
*'''2003'''
*'''2004'''
 
== ÍBV - héraðssamband ==
Eftirtalin félög eru í héraðssambandi ÍBV:
*[[Golfklúbbur Vestmannaeyja]]
*ÍBV íþróttafélag
*[[Ungmennafélagið Óðinn]]
*[[Fimleikafélagið Rán]]
*[[Sundfélag Vestmannaeyja]]
*[[Körfuknattleiksdeild ÍV]]
*[[KFS]]-Knatspyrnufélagið Framherjar/Smástund
*[[VÍV]] - Vélhjólaklúbbur
*[[Hnefaleikafélag Vestmannaeyja]]
*[[Hokkífélagið Jakarnir]]
 
Flest félögin starfa alveg sjálfstætt og hafa sér stjórn og stjórnir. Því er oftast talað um fótbolta og handbolta í sambandi við ÍBV en aðrar greinar falla undir tilheyrandi félög.
 
== Stjórn ==
''Formenn''
* [[Vigfús Ólafsson]] 1945 og 1950
* [[Sigurður Finnsson]] 1946-1948 og 1954-1958
* [[Gunnar Stefánsson]] 1949
* [[Jón Scheving]] 1951-1953
* [[Hrólfur Ingólfsson]] 1959
* [[Valdimar Kristjánsson]] 1960-1961
* [[Sigfús J. Johnsen]] 1962-1963
* [[Stefán Runólfsson]] 1964-1966 og 1968-1975
* [[Guðmundur Guðmundsson]] 1967
* [[Jóhann Pétur Andersen]] 1976-1978
* [[Óskar Sigurpálsson]] 1979-1981
* [[Gísli Magnússon]] 1982-1983
* [[Friðrik Óskarsson]] 1984-1985
* [[Guðmundur Þ. B. Ólafsson]] 1986-1988
* [[Ómar Garðarsson]] 1989-1992
* [[Sólveig Adólfsdóttir]] 1993-1997
* [[Ásmundur Friðriksson]] 1997-1999
* [[Birgir Sveinsson]] 1999-2001
* [[Þór Í. Vilhjálmsson]] 2001-
 
== Starf í dag ==
Eftir sameiningu Týs og Þórs, árið 1996, hefur starfið vaxið og dafnað. Má minnast á gott gengi meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir lok 20. aldarinnar þegar þeir urðu tvisvar Íslandsmeistarar og bikarmeistarar og í byrjun 20. aldarinnar hafa bæði kynin í meistaraflokki handboltans náð frábærum árangri og kvennaliðið sópað að sér titlunum.
 
Ánægjuleg er fjölbreytnin sem skapast hefur á undanförnum árum. Krakkar hafa úr ótal möguleikum að velja úr og nýjar greinar eins og hnefaleikar, dans og hokký hafa bæst í úrvalið á undanförnum árum.
 
== Sjá einnig ==
* [[Komum fagnandi]]. Stuðningsmannalag ÍBV.
 
 
== Tenglar ==
* [http://www.ibv.is Heimasíða ÍBV]
* [http://www.ksi.is Heimasíða Knattspyrnusambands Íslands]
* [http://www.hsi.is Heimasíða Handknattleikssambands Íslands]
 
{{Heimildir|
* [[Þorsteinn Gunnarsson]]. ''50 ára afmælisrit ÍBV.'' 1995. Vestmannaeyjar: ÍBV.
}}
 
[[Flokkur:Félög]]

Núverandi breyting frá og með 31. október 2023 kl. 23:19