Ársæll Sveinsson (húsasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:33 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:33 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ársæll Sveinsson er fæddur 16. janúar 1955. Foreldrar hans voru Sveinn Ársælsson og Bernódía S. Sigurðardóttir. Þau hjón eignuðust 6 börn, Ársæl, Hlöðver, Örlyg, Dóru, Svein og Karl. Ársæll ólst upp á Túngötu. Ársæll er giftur Sigrúnu Axelsdóttur, dóttur Axels Lárussonar og Sigurbjargar Axelsdóttur. Sigrún og Ársæll eiga tvær dætur, þær Karen og Anítu.

Ársæll ásamt Sigrúnu konu sinni og eldri dóttur þeirra, Karen.

Ársæll gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja, Gagnfræðaskólann og síðar Iðnskólann. Hefur hann unnið sem smiður í tugi ára. Ársæll stundaði einnig fótbolta með ÍBV í mörg ár.

Ársæll og Sigrún eru nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem Ársæll vinnur sem smiður hjá íslenskum manni. Þau hjón reka einnig gistiheimili í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um það má finna á vefslóðinni http://www.volosvej.dk/#.