Árni Magnússon (Fredensbolig)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2015 kl. 18:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2015 kl. 18:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Árni Magnússon''' vinnupiltur í Fredensbolig fæddist 1. október 1833 í Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lést 28. ágúst 1848.<br> Foreldrar hans voru Magnús Guðlaugs...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Magnússon vinnupiltur í Fredensbolig fæddist 1. október 1833 í Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lést 28. ágúst 1848.
Foreldrar hans voru Magnús Guðlaugsson bóndi og bátsformaður við Landeyjasand, f. 20. september 1805 á Hemlu í V-Landeyjum, d. 10. júní 1862 á Kálfsstöðum þar, og kona hans Þuríður Ólafsdóttir húsfreyja, fædd í Efra-Fíflholti í V-Landeyjum, skírð 16. mars 1801, d. 7. nóvember 1888 í Vestritungu þar.

Árni var með foreldrum sínum í Syðri Vatnahjáleigu 1835, í Fagurhól í A-Landeyjum 1845.
Hann fluttist til Eyja 1846 og var vinnupiltur í Sorgenfri/Fredensbolig hjá Jóni Jónssyni Austmann og Rósu Hjartardóttur.
Árni hrapaði til bana úr Klifinu 1848.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.