Árni Gíslason (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 11:06 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 11:06 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Gíslason fæddist í Stakkagerði 2. mars 1889. Foreldrar hans voru Gísli Lárusson gullsmiður og Jóhanna Árnadóttir. Þann 20. september 1913 kvæntist Árni Sigurbjörgu Sigurðardóttur. Árni lést 1957.

Árni vann um skeið í verslun Gísla J. Johnsen í Edinborg. Síðar vann hann við bókhald kaupfélagsins Fram. Einnig var hann hafnargjaldkeri.