„Álsey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
3.580 bætum bætt við ,  4. nóvember 2005
Gísli Lárusson
Ekkert breytingarágrip
(Gísli Lárusson)
Lína 9: Lína 9:


Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá [[Presthús]]um og Sigurður Sigurðsson frá [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur.
Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá [[Presthús]]um og Sigurður Sigurðsson frá [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] við aðsókn í Álsey. Sigurður vildi fara á bælið en Magnús aftraði því. Hann sagðist ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur.
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
VIII. '''Álfsey'''  liggur því nær frá austri til vesturs, ca 400-500 faðma (?) frá Brandi í útnorður. Hún er stærst úteyja næst Ellirey. Hálendi er eftir henni frá austri til vesturs, þannig að halli er að norðaustan í sjó niður, en suður af er halli lítill fyrir miðju og standberg 60 faðmar á hæð. Er þetta svæði nefnt '''Sléttimoldi''' . Austur af Sléttamolda er halli og grasi vaxið lengra niður, svo og þar sem hryggurinn endar að austan. Er það nefnt '''Lend''' . Á Lend eru þessi örnefni: Til suðausturs er rennslétt brekka, en mjög snögg, nefnd '''Slægja'''  (hefir þar aldrei slegið verið svo menn viti). Þá er fyrir neðan brún bekkur, lítið grasivaxinn, '''Svelti''' , fýlabyggð.
Þá er '''Teinahringsbæli'''  – svartfuglabæli – stórt, ekki langt frá sjó (< Tíærings- átti að vera hægt að hvolfa þar tíæring, sbr. áttæring > áttahrings). Þá er norðar í Lendinni nefnt '''Landnorðursnef''' . Fyrir vestan Landnorðursnef, en norður af Lend er móhryggur, '''Hella''' . Hér fyrir vestan eru 2 brekkur, sú neðri er nefnd '''Siggafles''' , en sú efri '''Lúsafles''' . Austur úr Siggaflesi í sjó út er mjór tangi, '''Mjóistígur''' , en niður af Siggaflesi við sjó er nefndur ('''Ókindabás''' ) '''Kindabás''' . Fyrir vestan Sléttamolda er '''Brattimoldi''' , þar niður af '''Útsuðurskórar'''  – svartfuglabæli. Hér upp af frá Lend og vestur að skarði er nefnist '''Nóngil''' , er nefnt '''Hryggur'''  og er sunnan megin Nóngils stór grasbrekka, sem gengur lengst niður sunnan á móti, og vestur á enda eyjarinnar nefnd '''Lækjarbrekka'''  og takmarkar '''Útsuðursnef'''  hana að vestan. Þar upp af, en vestur af Lækjarbrekku, er allmikið svæði á hamrinum, '''Vestursvelti''' , fýlabyggð, en ofan við það og vestur af háeynni, '''Langaofanferð''' . Fyrir neðan hana er nefnt '''Háuflár''' ; er þar gengið upp af sjó til fugla. Hér fyrir norðan er fýlabyggð mikil, '''Slakki''' .
Langur tangi gengur nú hér út úr eynni, smáhallandi niður og myndast þannig eins og höfn til norðausturs og er tanginn nefndur '''Þjófanef''' . Nafnið tilorðið að sögn einhvern tíma er gengið var upp á eyna, fundu menn þar útlenskar voðir – skemmdar – og er ætlun manna að þær hafi verið látnar þar sem andvirði á stolnu fé er vantaði þá. Var tangi þessi áður nefndur „'''Húnanef'''“  (var karta á nefinu sem myndaði eins og hún). Er uppganga á Þjófanef bæði að austan og vestan. Af nefinu upp á eyna er tæpt einstigi.
Þar sem tanginn myndast upp við eyna, er gat gegnum tangann fyrir neðan sjávarmál, sést efri brún gatsins aðeins í stórbrimum, eða við lagfjöru. Þegar sól er komin í vestur, sést alltaf sólargeislinn í gegnum gatið. Myndast eins og krókur inn í eyna, þar sem gatið er og er það svæði nefnt '''Gat'''  og nefið fyrir austan '''Gatnef''' . Er svæðið hér upp af allt að Nóngili nefnt '''Nef''' , en niður af Nóngili að austan er nefnt '''Djúpafles''' . Hér austur af, en niður af hryggnum norðanmegin er nefnt '''Bringir''' . Þá er gil, sem liggur ofan af eynni norðanmegin, '''Vatnsgil''' (rennur vatn eftir því). Fyrir vestan Vatnsgil er aðaluppganga á eyna nefnd '''Lundakór'''  og '''Ögmundarkór'''


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
* Sögn Sigurðar Sigurðssonar úr Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014
* Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014
}}
* [[Gísli Lárusson]]. Óútgefið '''Örnefni á Vestmannaeyjum'''. [http://www.ornefni.is
 
Örnefnastofnun Íslands]}}


[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]

Leiðsagnarval