Á Þjóðhátíð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 15:03 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 15:03 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Við erum öll á Þjóðhátíð
við erum öll á Þjóðhátíð
við gerum allt á Þjóðhátíð
allt sem við viljum
Segja vil ég þetta þér
þegar dans á völdin.
Allra best ég uni mér
inni í Dal á kvöldin.
Hér er bergið logum lýst,
létt um bros hjá meyjum
Þér mun líka það er víst,
Þjóðhátíð í Eyjum
Dátt um allan Dalinn minn
duna gleðiköllin.
Glampa slær á gítarinn
græna hlíð og fjöllin.
Ævintýrin mest ég met
meðan eldur brennur.
Héðan ekki fer ég fet
fyrr en dagur rennur
Við erum öll á Þjóðhátíð
við erum öll á Þjóðhátíð
við gerum allt á Þjóðhátíð
allt sem við viljum
Við syngjum öll á Þjóðhátíð
við dönsum öll á Þjóðhátíð
við gerum allt á Þjóðhátíð
allt sem við viljum
Já hérna er gleði og gaman
og gantast í tjöldum og hlíð.
Hjá bálinu setið er saman
og sungið á Þjóðhátíð
Við erum.....

Lag: Geirmundur Valtýsson Texti: Guðjón Weihe og Geirmundur Valtýsson