Gísli Gíslason Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júlí 2014 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júlí 2014 kl. 15:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Gísli Gíslason Bjarnasen“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Gíslason Bjarnasen smiður, beykir og verslunarmaður í Nöjsomhed fæddist 27. júlí 1858 í Hallgeirsey í A-Landeyjum og lést 6. maí 1897.
Foreldrar hans voru Sigurður Gísli Gunnar Bjarnasen, f. 30. maí 1837 og barnsmóðir hans Halla Sigurðardóttir vinnukona frá Langagerði í Stórólfshvolssókn, Rang., f. 1830, d. 15. mars 1890 í Nöjsomhed

Gísli var sonur einstæðrar móður, sem fæddi hann í vinnumennsku í Hallgeirsey í A-Landeyjum. Hann var sendur til Eyja úr Landeyjum 1860 í fóstur til Jórunnar Jónsdóttur Austmann og Jóns Jónssonar Salomonsen verslunarstjóra og hafnsögumanns, en Jón var ömmubróðir hans, bróðir Sigríðar Jónsdóttur föðurmóður hans.
Gísli var hjá þeim til 19 ára aldurs. Hann fór til Eyrarbakka frá Garðinum 1877, en kom aftur í Garðinn frá Eyrarbakka 1878.
Hann var húsasmiður þar 1880, síðar einnig beykir og verslunarmaður í Eyjum.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1881, sigldi og nam smíðar, kom frá Reykjavík til Eyja 1886 með Helgu og börnin Gíslínu og Halldóru og einnig kom með þeim Halla Sigurðardóttir 57 ára án titils úr Hvolhreppi. Hún var móðir Gísla. Öll stefndu þau að Uppsölum.
Halla móðir Gísla lést 1890. Þá hafði Gísli „atvinnu af verslun“ og bjó í Nöjsomhed með Helgu og fjórum börnum þeirra.
Hann lést 1896.

Kona Gísla, (19. nóvember 1885), var Helga Guðmundsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 24. júní 1863, d. 18. mars 1931. Gísli var fyrri maður hennar. Síðari maður var Einar Halldórsson sjómaður og útgerðarmaður í Sandprýði.
Börn Gísla og Helgu voru:
1. Halldóra Gísladóttir vinnukona, síðar í Kópavogi, f. 12. desember 1885, d. 10. júní 1965.
2. Gíslína Gísladóttir, f. 12. desember 1885, d. 12. mars 1890.
3. Jón Gíslason útgerðarmaður á Ármótum, f. 4. janúar 1888 á Uppsölum, d. 20. febrúar 1970.
4. Jórunn Gísladóttir húsfreyja, f. 27. júní 1889, d. 3. nóvember 1961.
5. Halla Sigríður Gísladóttir, f. 29. desember 1892 í Nöjsomhed, d. 17. mars 1893.
6. Guðmundur Gíslason, f. 16. júní 1894, d. 12. nóvember 1894.
7. Karolína Vilborg Gísladóttir, f. 5. janúar 1896 í Nöjsomhed, d. 25. júlí 1896.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Ljósmæður á Íslandi 1-2. Ritstjóri Björg Einarsdóttir. Ljósmæðrafélag Íslands 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.