Dagsbrún

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 10:44 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2005 kl. 10:44 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Dagsbrún stóð við Kirkjuveg 8b. Það fór undir hraun í gosinu 1973. Árni J. Johnsen rak um nokkurra ára skeið á jarðhæðinni Blómaverslunina Happó, ásamt Ingibjörgu, dóttur sinni sem síðan tók alfarið við rekstri verslunarinnar og var hún eftir það kennd við hana. Á sjötta áratug síðustu aldar var húsið notað sem verbúð og fékk þá viðurnefnið Kórea en á þeim árum mun oft hafa verið þar róstusamt og þótti einhverjum minna á Kóreustríðið sem þá stóð sem hæst.