Bergur Magnússon (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. apríl 2013 kl. 11:32 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. apríl 2013 kl. 11:32 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Bergur Magnússon''' á Vilborgarstöðum fæddist 1837, hrapaði til bana í Dufþekju 23. ágúst 1866.<br> Foreldrar hans voru [[Magnús Ólafsso...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bergur Magnússon á Vilborgarstöðum fæddist 1837, hrapaði til bana í Dufþekju 23. ágúst 1866.
Foreldrar hans voru Magnús Ólafsson sjómaður á Vilborgarstöðum, f. 1801, d. 9. júlí 1851, og kona hans Guðbjörg Daníelsdóttir húsfreyja, f. 1801, d. 27. desember 1888.

Magnús var með foreldrum sínum 1845 og 1850, með ekkjunni móður sinni 1855, 19 ára. Þar er ógift vinnukona Sigþrúður Ormsdóttir 24 ára. 1860 er þar einnig ógifta vinnukonan Sigþrúður Ormsdóttir og barn henna Elísabet Bergsdóttir þriggja ára.
Á öðrum bæ á Vilborgarstöðum er þá vinnukonan Guðbjörg Árnadóttir 26 ára.
Bergur var í Herfylkingunni.

Bergur átti tvær konur (SMJ):
I. Sigþrúður Ormsdóttir, f. 1833, d. 30. september 1861:
Barn þeirra:
Elísabet Bergsdóttir, f. 1857, d. 6. júlí 1928.
Hún varð kona Arnbjörns Ögmundssonar í Presthúsum.
Þau voru foreldrar Bergmundar Arnbjörnssonar, Þorbjörns Arnbjörnssonar, Ágústu Arnbjörnsdóttur húsfreyju, konu Kristins Jónssonar á Tanganum og Guðbjargar Arnbjörnsdóttur.

II. Síðari kona Bergs var Guðbjörg Árnadóttir, f. 6. október 1835, d. 1. nóvember 1928. Hann var fyrri maður hennar. Síðari maður hennar (1876) var Sæmundur Guðmundsson húsmaður á Vilborgarstöðum.
Barn þeirra Bergs hér nefnt:
Sigurður Bergsson, f. 1865.
Við manntal 1910 segist Guðbjörg hafa eignast þrjú börn, en ekkert þeirra sé á lífi.


Heimildir