Gjábakki-vestri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. nóvember 2012 kl. 16:11 eftir Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. nóvember 2012 kl. 16:11 eftir Þórunn (spjall | framlög) (Bætt við byggingarári húss)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Gjábakki


Húsið Gjábakki-vestri stóð við Bakkastíg 17, vestur af Brimnesi. Það fór undir hraun 1973. Á ofanverðri 19. öld bjuggu á Gjábakka-vestri Ingimundur Jónsson og Margrét Jónsdóttir, foreldrar Kristjáns í Klöpp, Jóns í Mandal og Þórönnu ljósmóður í Nýborg. Ingimundur sat jörðina í rúmlega hálfa öld og byggði það hús árið 1901 sem fór undir hraun. Þarna bjó lengi Gunnlaugur Sigurðsson formaður ásamt konu sinni Elísabetu Arnoddsdóttur og stórum barnahópi þeirra en níu þeirra komust til fullorðinsára. Mikill ættbogi er frá þeim Gunnlaugi og Elísabetu.

Þegar gaus, 23 janúar 1973, bjuggu á Gjábakka-vestri systkinin Sigurbjörg og Jón Gunnlaugsbörn.


Heimildir

  • Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.