Guðjón Hafliðason (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. mars 2011 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. mars 2011 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Hafliðason fæddist 8. júlí 1889 að Fjósum í Mýrdal og lést 13. júlí 1963. Eiginkona Guðjóns var Halldóra Þórólfsdóttir. Áttu þau 11 börn; Ingólf, Trausta, Guðbjörgu, Auði, Harald, Rebekku, Elísabetu, Óskar, Önnu, Ester og Hafliða. Þau bjuggu í húsinu Skaftafell við Vestmannabraut og voru fjölskyldumeðlimir gjarnan kenndir við húsið.

ctr


Börnin frá Skaftafelli:

Frá v: Hafliði, Ester, Anna, Óskar, Elísabet, Guðbjörg, Auður, Rebekka, Ingólfur, Haraldur og Trausti


Fr.v.Guðbjörg og Anna, Ester, Auður og Elísabet, Ingólfur og Haraldur og, Óskar og Trausti Guðjónsbörn Hafliðasonar og Halldóru Þórólfsdóttur frá Skaftafelli v/ Vestmannabraut 62


Guðjón fór til Vestmannaeyja árið 1911 og gerðist háseti á Íslending hjá Friðriki Jónssyni og var með honum til ársins 1914. Þá byrjar Guðjón formennsku á Mýrdæling I og var með þann bát í fimmtán vertíðir. Eftir það kaupir hann Mýrdæling II og var með hann til ársins 1936. Eftir það hætti hann formennsku.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.