Jón Arason prestur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 09:25 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2005 kl. 09:25 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Arason var prestur í Vestmannaeyjum frá 1809 til 1810. Hann var fæddur að Stað í Grindavík árið 1777. Foreldrar hans voru séra Ari Guðlaugsson, prestur að Ofanleiti og Kristín Grímsdóttir. Jón varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1801 og vígðist aðstoðarprestur föður síns árið 1805, en fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakalli 1809.

Hann var hann mjög vel látinn af sóknarfólki sínu. Jón þjónaði prestakallinu í aðeins rúmt ár. Hann varð bráðkvaddur 10. sept 1810. Kona hans var Þorbjörg Pétursdóttir frá Gjábakka í Vestmannaeyjum Vilhjálmssonar. Þau áttu fimm börn, en aðeins tvö þeirra komust upp.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.