Hundraðmannahellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 11:07 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 11:07 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hundraðmannahelli er hellir í Torfamýri sem er syðst í Herjólfsdal. Hægt er að finna hellin með því að Hellirinn er stuttan spöl frá Hamarsvegi, við 10 holu. Hann er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða. Hinsvegar er það hið mesta ævintýri að kanna þennan helli eins og margir geta sagt til um. Þegar komið er inn í hann þarf að skríða nokkurn spöl. Þegar lengra er komið þá hækkar hellirinn og getur meðal maður staðið næstum uppréttur í honum. Innst inn í hellinum er svo holrými og komast nokkrir þar inni í einu. Ef ímyndurnaraflið sé í lagi þá mátti halda að þetta væri staður úr „Indiana Jones“-mynd.

Nafnið „Hundraðmannahellir“ er komið úr tyrkjaráninu en sagt er að hundrað manns hafi falið sig í honum. Ekki er það þó líklegt því erfitt hefði að koma svo mörgum í þennan helli.

Heimildir

  • Ferðabók F.Í. 1948 bls. 119-124