Blik 1936, 3. tbl./Sjómannskonan

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 11:43 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2009 kl. 11:43 eftir Saerun (spjall | framlög) (Ný síða: SJÓMANNSKONAN Ein í svölum aftanblænum úti sjómannskonan stóð; mann sinn á hún úti á sænum, ötull fiskar hann á lóð; fjögur á hún börn í bænum, björt á svi...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

SJÓMANNSKONAN

Ein í svölum aftanblænum

úti sjómannskonan stóð;

mann sinn á hún úti á sænum,

ötull fiskar hann á lóð;

fjögur á hún börn í bænum,

björt á svip og æskurjóð.


Ef ad vindur ólmur þýtur,

eða dökknar himininn,

svefns né værðar vart hún nýtur,

var svo og í þetta sinn.

Andvarpandi upp hún lítur:

»Æ, hve syrtir, drottinn minn!«


Öldur dans með ströndum stíga,

stormur þeytti lúður sinn.

Og í hafið hlaut ad síga

hlaðinn fiskibáturinn.

Bylgjur rísa, bylgjur hníga,

beljar næturvindurinn.


Ein í svölum aftanblænum

ekkjan föl og döpur stóð.

Fjøgur á hún børn í bænum,

bjørt á svip og æskurjóð.

Er sem hver ein alda á sænum

ymji henni sorgarljóð.


Sigurbjörn Sveinsson.