Bjarni Einar Magnússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. júlí 2005 kl. 14:52 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. júlí 2005 kl. 14:52 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Einar Magnússon var sýslumaður í Vestmannaeyjum frá 1861 til 1872. Hann var sonur Magnúsar beykis Gunnlaugssonar frá Flatey og Þóru Guðmundsdóttur Scheving. Bjarni lauk stúdentsprófi frá Reykjavíkurskóla árið 1854. Hann tók próf í heimspeki frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1855 og tók síðan próf í lögfræði árið 1860. Konan hans var Hildur Solveig Bjarnadóttir og þau eignuðust þrjá syni.

Bjarna lét sér annt um framfaramál Vestmannaeyinga. Hann gekkst fyrir stofnun Skipaábyrgðarfélags Vestmannaeyja (síðar Bátaábyrgðarfélagið) ásamt fleirum. Bjarni var einnig meðstofnandi að Lestrarfélagi Vestmannaeyja, sem síðar varð Bókasafn Vestmannaeyja.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.