Philip Theodor Davidsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:15 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:15 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Philip Theodor Davidsen, héraðslæknir 1852 til 1862. Hann var danskrar ættar eins og þeir læknar, sem áður höfðu verið skipaðir til læknisþjónustu í Vestmannaeyjum. Hafði hann áður verið aðstoðarlæknir í her Dana í Slévíkurstríðinu 1849 til 1850 og síðar starfandi læknir í Kaupmannahöfn. Hann lést 1862 og var þá Solveigu Pálsdóttur enn með stjórnarráðsbréfi falið að veita sjúkum læknishjálp, þar til nýr læknir kæmi og hlaut hún sérstök laun fyrir þetta starf sitt.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.