Pétur Gissurarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:40 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:40 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Gissurarson var prestur í Vestmannaeyjum frá 1660 til 1689. Foreldrar hans voru séra Gissur Gamalíusson á Staðarbakka og kona hans Ementerina Jónsdóttir. Lærði í Skálholtsskóla, en var í þjónustu Gísla Hákonarsonar lögmanns í Bræðratungu, síðan Gísla Oddsonar biskups. Fór utan og var skráður í Stúdentatölu í háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1636, var síðan í þjónustu Brynjólfs Sveinssonar biskups og heyrari í Skálholti frá 1642 til 1646. Fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakalli 1660 og hélt því til 1689, en andaðist 1691. Kona hans var Vilborg Kláusdóttir lögréttumanns að Hólmum í Landeyjum, Eyjólfssonar. Börn þeirra meðal annarra, séra Gissur prestur að Ofanleiti, séra Arngrímur prestur að Kirkjubæ, Gísli, sem myrtur var í Vestmannaeyjum 1692 og Emerentina er giftist Ólafi Árnasyni sýslumanni í Vestmannaeyjum.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930