Baldur Johnsen (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 08:59 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 08:59 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Baldur Johnsen, héraðslæknir 1951 til 1960. Fæddur í Reykjavík 22. október 1910. Foreldrar hans eru Sigfús J. Johnsen, bæjarfógeti og Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir trésmíðameistara í Reykjavík Jónssonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1930 og cand. med. frá Háskóla Íslands 1936. Stundaði framhaldsnám erlendis bæði í Englandi, Danmörku og víðar. Skipaður héraðslæknir 1938 í Reykjafjarðar- og Ögurhéraði og Ísafjarðarhéraði 1942 og héraðslæknir í Vestmannaeyjum 1951. Formaður Læknafélags Vestfjarða 1942 til 1943, átti sæti í bæjarstjórn Ísafjarðar 1944 til 1950. Gekkst fyrir stofnun Rotarýklúbss Vestmannaeyja og var fyrsti forseti hans. Kona hans er Jóhanna Söngkona, Johannsdóttir bónda á Möðruvöllum í Eyjafirði og eiga þau fjögur börn.

Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930