Halldór Kolbeins

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 14:40 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 14:40 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Kolbeins, 1945 til 1961. Fæddur að Staðarbakka í Miðfirði. Foreldrar hans voru séra Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson á Staðarbakka og kona hans Þórey Bjarnadóttir. Stúdent í Reykjavík 1915. Cand. theol. frá Háskóla Íslands 1920. Lauk einnig kennaraprófi sama ár. Fékk veitingu fyrir Flatey 1921, Stað í Súgandafirði 1925, Mælifelli 1941. Settur til prestþjónustu í Vestmannaeyjum 1938 til 1939. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli 1945 og gendi því til ársins 1961. Séra Halldór lést í Reykjavík 1964. Kona hans var Lára Ágústa Ólafsdóttir bónda í Hvallátrum á Breiðafirði, Bergsveinssonar. Áttu þau sex börn.