Ari Guðlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 13:27 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2005 kl. 13:27 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ari Guðlaugsson, 1789 til 1809. Foreldrar: Séra Guðlaugur Þorgeirsson í Görðum á Álftanesi og kona hans Valgerður Þórðardóttir prests í Meðallandsþingum, Gíslasonar. Stundaði nám í Skálholtsskóla og varð stúdent þaðan 1763. Lauk embættisprófi í Guðfræði frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1769. Vígðist aðstoðarprestur föður síns 1771, fékk Stað í Grindavík 1774, Selvogsþing 1788 og Ofanleiti 1789 og hélt því til æviloka. Kona hans var Kristín Grímsdóttir Lögsagnara að Giljá, Grímssonar. Börn þeirra voru tvö. Halldóra kona Tómasar Guðmundssonar í Villingaholti og Jón er varð prestur að Ofanleiti eftir föður sinn.