Árni Oddsson (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2009 kl. 01:31 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2009 kl. 01:31 eftir Frosti (spjall | framlög) (setti inn mynd)
Fara í flakk Fara í leit
Árni og Sigurbjörg, kona hans.


Árni OddssonBurstafelli var fæddur að Búastöðum í Vestmannaeyjum 6. maí 1888 og lést 16. júní 1938. Foreldrar hans voru Oddur Árnason og Jóhanna Lárusdóttir. Árni ólst upp hjá föðurforeldrum sínum að Oddsstöðum, Árna Þórarinssyni og Steinunni Oddsdóttur. Árni var kvæntur Sigurbjörgu Sigurðardóttur.

Ungur byrjaði Árni að stunda sjóinn á Halkion hjá Hannesi Lóðs og var með honum þar til vélbátarnir komu til Vestmannaeyja.

Árni var sjómaður á þeim fyrstu vélbátum sem til Eyja komu, fyrst á Ögðu (7 tonn) árið 1912 en síðar á Ísak. Árni var auk þess umboðsmaður Brunabótafélags Íslands.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. 1 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.