Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. apríl 2008 kl. 20:50 eftir Halli14 (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. apríl 2008 kl. 20:50 eftir Halli14 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Við Framhaldsskólan starfar öflugt nemendafélag. Það heitir Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, skammstafað NFFÍV. Félagar eru nemendur sem greiða félagsgjöld sem ákveðin eru ár hvert í byrjun hverrar annar. Tilgangur félagsins er að: • Gæta hagsmuna nemenda gagnvart skólayfirvöldum og ráðuneyti og virkja nemendur til baráttu fyrir hagsmunum sínum.

• Skipuleggja félagsstarfsemi undir merkjum skólans og styðja við bakið á annarri félagsstarfsemi eftir föngum.

• Vinna að góðri ímynd Framhaldsskólans á sem flestum sviðum

Í stjórn NFFÍV er kosið í lok apríl ár hvert. Kjosið er um formann, varaformann og gjaldkera og það grunnstjórn félagsins. Grunnstjórin velur svo með sér þrjá meðstjórnendur, þeir eru fjölmiðlafulltrúi, íþróttafulltrúi og nýneminn (businn). Á stjórnarfundum hefur hver aðili í grunnstjórn tvöfaldan atkvæðisrétt, en meðstjórendurnir hafa hver um sig einfaldan. Samtals 9 atkvæði.

Formaður NFFÍV er sjálfkrafa fulltrúi í Skólanefnd og Skólaráði. Varaformaður er varamaður hans. Stjórn NFFÍV skal sjá til þess að starfrækt verði vefnefnd innan skólans sem sjái um að halda úti heimasíðu NFFÍV. Stjórn NFFÍV skipar fjölmiðlafulltrúa sem er ritstjóri vefsíðu og blaðaútgáfu félagsins.

Stjórn NFFÍV skal sjá til þess að starfrækt verði íþróttanefnd innan skólans sem skal sjá um að koma á sterkri og fjölþættri íþróttastarfsemi í skólanum. Stjórn NFFÍV skipar íþróttafulltrúa sem sér um skipulagningu slíkra atburða.

Stjórn NFFÍV veturinn 2007-2008 skipa Haraldur Pálsson formaður

Kristinn E. Árnason varaformaður og ritari

Bragi Magnússon gjaldkeri

Sara Sjöfn Grettirsdóttir fjölmiðlafulltrúi

Sara Dögg Guðjónsdóttir íþróttafulltrúi

Bjartey Ingibergsdóttir nýnemi (busi)


Helstu föstu þættirnir í starfi nemendafélagsins eru þessir: • Busavígsla í upphafi haustannar • Busaball í upphafi haustannar • FÍV cup á haustönn • Prufur fyrir öflugt spurningalið fyrir Gettu Betur á haustönn • Fótboltamót KSÍ milli framhaldsskóla • Ýmis mót, eins og spilamót, fótboltaspilsmót, borðtennismót, mottukeppni og fleirra.. • Guðlaugssundið á vorönn • Opin vika á vorönn • Skólaferðalag á vorönn • Árshátíð nemendafélagsins á vorönn • Auk þessara þátta sér nemendafélagið um margs konar uppákomur á skólaárinu.

Félagsmálafulltrúi og forvarnafulltrúi starfa náið með Nemendafélaginu.