Vesturhús-eystri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2007 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2007 kl. 21:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (setti tengla.)
Fara í flakk Fara í leit
Vesturhús. Eystri-Vesturhús eru til hægri.

Húsið Vesturhús-eystri stóð við Ásaveg 35 þangað til það var rifið árið 1969.

Á Eystri-Vesturhúsum bjuggu fyrir og um miðja 20. öldina Þorsteinn Ólafsson verkamaður, kona hans Gíslný Jóhannsdóttir og fjölskylda þeirra. Einnig bjuggu þar þá Alfreð Washington Þórðarson (Vosi) tónlistarmaður, kona hans Jónína Jóhannsdóttir (systir Gíslnýjar) og fjölskylda þeirra.

Alexander Helgason og Guðlaug Sveinsdóttir keyptu neðri hæð hússins árið 1954 og áttu heima þar ásamt þremur dætrum sínum, Guðrúnu , Önnu Rögnu og Sveindísi.

Saumaklúbbur Vesturhúsasystra og frænkna