Vesturhús-eystri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2007 kl. 09:09 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2007 kl. 09:09 eftir Daniel (spjall | framlög) (Vesturhús-Eystri færð á Vesturhús-eystri)
Fara í flakk Fara í leit
Vesturhús. Eystri-Vesturhús eru til hægri.

Húsið Vesturhús-eystri stóð við Ásaveg 35 þangað til það var rifið árið 1969.

Á Eystri-Vesturhúsum bjuggu fyrir og um miðja 20. öldina Þorsteinn Ólafsson verkamaður, kona hans Gíslný Jóhannsdóttir og fjölskylda þeirra. Einnig bjuggu þar þá Alfreð Washington Þórðarson (Vosi) tónlistarmaður, kona hans Jónína Jóhannsdóttir (systir Gíslnýjar) og fjölskylda þeirra.

Alexander Helgason og Guðlaug Sveinsdóttir keyptu neðri hæð hússins árið 1954 og áttu heima þar ásamt tveimur dætrum sínum, Önnu Rögnu og Sveindísi.

Saumaklúbbur Vesturhúsasystra og frænkna