Árdalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 16:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 16:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Árdalur

Húsið Árdalur var byggt árið 1929 og stendur við Hilmisgötu 5. Árni J. Johnsen byggði þetta hús og bjó þar ásamt konu sinni Margréti Jónsdóttur frá Suðurgarði í fjölda mörg ár. Óskar Þorsteinsson bóksali bjó einnig í húsinu.

Nú búa í húsinu Grétar Jónatansson og Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, dótturdóttir Árna J. Johnsen.

Í garði Árdals er hæsta tré í Vestmannaeyjum.