Hannes Hansson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 13:33 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 13:33 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hannes Hansson fæddist í Vestmannaeyjum 5. nóvember 1890 og lést 18. júní 1974. Hann ólst upp hjá hjónunum Ögmundi Ögmundssyni og konu hans Vigdísi Árnadóttur ásamt dóttur þeirra Þórunni og öðrum fóstursyni, Þorbirni Arnbjörnssyni. Þau bjuggu í tómthúsinu Landakoti sem stóð nálægt Stakkagerði. Kona Hannesar var Magnúsína Friðriksdóttir frá Gröf.

Hannes byrjaði ungur sjómennsku, meðal annars hjá Þorsteini í Laufási á Unni og hjá Sigurði Ingimundarsyni á Gnoð. Árið 1912 hóf Hannes formennsku á Nansen. Hannes hætti sjómennsku árið 1940 og gerðist afgreiðslumaður á Básaskersbryggju á olíu til flotans. Hann var einn af stofnendum skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi og var hann kjörinn heiðursfélagi þar árið 1963.