Hellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 09:18 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 09:18 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hellir

Húsið Hellir stendur við Vestmannabraut 13b. Það var reist árið 1923 af Sigurði Gíslasyni, múrara.

Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir búa í Helli ásamt þremur sonum þeirra. Þau byggðu við Helli árið 1990 í kjölfar fjölgunar í fjölskyldunni. Fékk húsið þá það skondna viðurnefni Hundraðmanna-Hellir, sem er jú tilvísun til Hundraðmannahellis.


Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.