Ásmundur Friðriksson (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. febrúar 2025 kl. 15:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. febrúar 2025 kl. 15:41 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ásmundur Friðriksson frá Stakkholti, fæddist 21. janúar 1956.
Foreldrar hans Friðrik Ásmundsson, skipstjóri, skólastjóri, f. 26. nóvember 1934, d. 19. nóvember 2016, og kona hans Valgerður Erla Óskarsdóttir, húsfreyja, fiskvinnslukona, skólastarfsmaður, f. 24. maí 1937, d. 6. nóvember 2015.

Ásmundur Friðriksson.

Börn Valgerðar Erlu og Friðriks:
1. Ásmundur Friðriksson, f. 21. janúar 1956.
2. Óskar Pétur Friðriksson , f. 19. júní 1958.
3. Elías Jörundur Friðriksson, f. 2. júní 1967.

Ásmundur lauk gagnfræðaprófi í Skógaskóla 1973.
Stundaði netagerð og sjómennsku 1970–1972. Vann við hreinsun Heimaeyjar sumarið 1973. Verkstjóri hjá Viðlagasjóði við hreinsun, endurreisn og uppgræðslu Heimaeyjar 1974–1978. Framleiðslu- og yfirverkstjóri hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja 1978–1986. Sjálfstætt starfandi blaðamaður 1980–2003. Framkvæmdastjóri Samkomuhúss Vestmannaeyja 1986. Rak fiskvinnslufyrirtækið Kútmagakot ehf. 1988–2003. Framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur 2004. Verkefnastjóri Ljósanætur 2006. Verkefnastjóri í atvinnu- og menningarmálum hjá Reykjanesbæ 2008. Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs 2009–2012. Í þjóðhátíðarnefndum Vestmannaeyja 1974–1996. Formaður Handknattleiksdeildar Þórs 1974–1978. Formaður Eyverja, félags ungra Sjálfstæðismanna, 1981–1984. Í stjórn SUS 1983–1987. Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins og í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum 1982–1986. Varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Vestmannaeyja 1982–1986. Í stjórn Herjólfs hf. 1982–1991. Í stjórn Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja 1982–1991. Formaður íþrótta- og tómstundaráðs Vestmannaeyja 1982–1986. Ritstjóri Fylkis, málgagns Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, 1986–1988. Formaður ÍBV 1994–1999. Formaður knattspyrnudeildar ÍBV 1999–2002. Stofnandi og formaður hollvinasamtaka Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, NLFÍ, 2005–2011. Í stjórn Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ 2007–2008. Stofnandi Lista- og menningarfélagsins í Garði 2009. Stjórnandi listaverkefnisins Ferskir vindar í Garði frá 2010. Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garði 2012–2013. Formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum frá 2014. Í samráðsnefnd um veiðigjöld síðan 2017.
Alþingismaður Suðurkjördæmis 2013–2024 (Sjálfstæðisflokkur). 4. varaforseti Alþingis 2023–2024.
Atvinnuveganefnd 2013–2016, 2017, 2017–2021 og 2023–2024, velferðarnefnd 2013–2016, 2017–2021 og 2021–2024, kjörbréfanefnd 2016, umhverfis- og samgöngunefnd 2017.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2017–2021, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2021–2023, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2021–2023.
Ásmundur hefur skrifað bækurnar Ási grási í Grænuhlíð, Hrekkjalómafélagið - Prakkarastrik og púðurkerlingar, Strand í gini gígsins, Lífssaga Didda Frissa, og Eddi í Hópsnesi.

Ásmundur eignaðist barn með Sigurlaugu 1975.
Þau Sigríður giftu sig, eignuðust þrjú börn og Sigríður átti eitt barn. Þau buggu við Búastaðabraut 5, búa nú í Reykjanesbæ.

I. Barnsmóðir Ásmundar er Sigurlaug Sigurpálsdóttir, f. 13. mars 1958.
Barn þeirra:
1. Friðrik Elís Ásmundsson, f. 24. júní 1975.

II. Kona Ásmundar er Sigríður Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 26. janúar 1958. Foreldrar hennar Magnús G. Jensson, húsasmíðameistari, f. 29. júní 1933, d. 6. júlí 2008, og kona hans Kristín Guðríður Höbbý Sveinbjörnsdóttir, f. 23. júlí 1937, d. 25. apríl 2024.
Börn þeirra:
2. Ása Hrönn Ásmundsdóttir, f. 27. janúar 1982.
3. Erla Ásmundsdóttir, f. 25. nóvember 1984.
4. Magnús Karl Ásmundsson, f. 7. júlí 1991.
Barn Sigríðar:
5. María Höbbý Sæmundsdóttir, f. 30. mars 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.