Steinunn Oddsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 14:14 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 14:14 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Oddsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 22. janúar 1824 á Stekkjarhjáleigu í Hálssókn í Hamarsfirði í S-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru Oddur bóndi í Stekkjarhjáleigu hjá Hálsi í Hamarsfirði, f. um 1768 í Borgargerði í Hálssókn, Gunnlaugs bónda í Búlandsnesi, f. um 1708 og konu Gunnlaugs, Málfríðar Einarsdóttur. Móðir Steinunnar og barnsmóðir Odds, (Steinunn var framhjátökubarn Odds bónda), var Jóhanna Ketilsdóttir, en móðir hennar var Katrín Jörundsdóttir, f. 1758.
Steinunn var gift vinnukona á Karlsstöðum í Berunessókn í S-Múl. 1845, gift Þorláki Vigfússyni. Hjá þeim er sonur þeirra Stefán Jóhannes.
Hún var húsfreyja á Kirkjubæ í Eyjum 1870 og á Oddsstöðum 1880.

Fyrri eiginmaður Steinunnar var Þorlákur Vigfússon vinnumaður á Karlsstöðum á Berufjarðarströnd 1845, f. 1805.
Barn þeirra var Stefán Jóhannes, f. 1843, d. 1892.
Síðari maður hennar var Árni Þórarinsson, f. 1825.
Börn þeirra voru:

  1. Anna Sigríður, f. 1855,
  2. Þorgeir, f. 1859,
  3. Sveinn (Skaftfell), f. 1859,
  4. Þorgerður, f. 1865,
  5. Oddur, f. 1865.

Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Einar Jónsson. Ættir Austfirðinga. Reykjavík: Austfirðingafélagið í Reykjavík, 1953-1968.
  • Manntöl.
  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1944.