Stefán Árnason (yfirlögregluþjónn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2006 kl. 10:19 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stebbi pól.

Stefán Árnason fæddist 31. desember 1892 í Sauðhúsnesi, Álftavershreppi, V-Skaftafellssýslu og lést 29. júlí 1977. Árið 1920 fluttist hann til Vestmannaeyja.

Í daglegur tali var hann oftast kallaður Stebbi pól. Hann hóf störf í lögreglunni í Vestmannaeyjum árið 1922 og var yfirlögregluþjónn í 30 ár, frá 1932 til 1962. Stefán var mikið starfandi í Leikfélagi Vestmannaeyja og tók að sér mörg hlutverk.

Stefán var kynnir á 55 þjóðhátíðum, þeirri síðustu árið 1977. Segja sögur að Stefán hafi þráð að vera kynnir á hátíðinni 1978 sem var sú fyrsta sem haldin var í Herjólfsdal eftir gos en honum entist ekki aldur til þess.