Árdalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 10:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2006 kl. 10:16 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Árdalur var byggt árið 1929 og stendur við Hilmisgötu 5. Árni J. Johnsen byggði þetta hús og bjó þar ásamt konu sinni Margréti Jónsdóttur frá Suðurgarði í fjölda mörg ár. Óskar Þorsteinsson bóksali bjó einnig í húsinu.

Nú búa í húsinu Grétar Jónatansson og Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, dótturdóttir Árna J. Johnsen.