Bifröst

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2021 kl. 11:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2021 kl. 11:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Bifröst

Húsið Bifröst stendur við Bárustíg 11. Nafnið Bifröst er tekið úr goðafræði og var brúin á milli Miðgarðs og Valhallar. Húsið var byggt árið 1906 en það var stækkað á árunum 1930-1940.

Auk þess að vera íbúðarhús hefur Bifröst m.a. hýst rakarastofu Árna Böðvarssonar, billjardstofu á efri hæð, verslunina Markaðurinn, verslun Björns Guðmundssonar, Stafnes, Blómaverslun Ingibjargar Johnsen, Blómaverslun Ingibjargar Bernódusdóttur, Lanterna, og Bjössabar.

Eigendur og íbúar



Heimildir

  • Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.