Róbert Marshall

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:17 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 09:17 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Róbert Marshall er fæddur 31. maí 1971. Móðir hans er Fríða Eiríksdóttir og fósturfaðir hans er Jóhann Friðriksson, búsett á Hásteinsvegi. Kona Róberts er Brynhildur Ólafsdóttir fréttamaður og eiga þau eitt barn saman auk þess sem annað barn fæðist þeim á haustmánuðum 2006. Áður átti Róbert þrjú börn með Sigrúnu Elsu Smáradóttur.

Róbert var ungur að árum þegar hann hóf störf við fjölmiðlun. Róbert vann lengi sem fréttamaður á Stöð 2 en sagði af sér þegar í ljós kom að frétt sem hann hafði unnið um Íraksstríðið innihélt rangfærslur. Róbert var einnig formaður blaðamannafélags Íslands. Róbert starfar í dag sem forstöðumaður 365 ljósvakamiðla.

Árið 2003 leiddi Róbert brekkusönginn á Þjóðhátíð í fjarveru Árna Johnsen.